Ungur drengur í blóma lífsins lést
laugardaginn 4 mars síðastliðin hann hét Sesar Þór
Viðarsson.
ég þekkti Sesar allt hans líf, bæði sem frænda og sem vin.
Ég var spurð að því um daginn hver fyrsta minningin mín væri um
þig, ég held að sú fyrsta hafi verið þegar ég var í 3 bekk og þú í
4 og þessir bekkir voru í samkennslu, við vorum ný byrjuð í
skólanum og kennarinn okkar var vægt til orðatekinn geðveikur, hann
misti leyfið eftir að hann var búin að kenna okkur, en alla vega þú
komst að borðinu mínu og henti niður pennaveskinu mínu og allt fór
út um allt, ég aðsjálfsögðu varð ösku ill brunaði að þínu borði og
þrumaði pennaveskinu þínu niður líka! en auðvitað sá kennarinn "
BARA" þegar ég henti þínu veski niður og auðvitað var ég
hundskömmuð en þú slapp með skrekkinn.
Árið eftir vorum við enn í sömu stofu og þá vorum við að drag um
borð hvar við ættum að sitja, ég lenti á milli þín og Þ.Arnars, þú
byrjaði strax að stríða mér eitthvað og henti strokleðrinu mínu
eitthvert í buskan og meira í þeim dúr, en þar varð þér illilega á
því nú var ég í náðinni hjá kennaranum og bað hana vinsamlegast að
færa þig í burtu auðvitað gerði hún það og greyið þú þurfti að
sitja á miðju gólfinu það sem eftir var vikunnar
sem þér fannst
það nú ekkert slæmt að mig minnir bara gaman að vera miðpunktur
athyglinnar eins og þú var ævinlega
strákarnir tóku upp á því að borga þér 10 kall fyrir að kyssa
okkur stelpurnar. þeim fannst það voðalega sniðugt en ekki okkur,
maður var farinn að fela sig inni klósti þangað til þeir færu í
tíma
þetta var auðvitiða mjög fyndið því þú græddi að mig minnir
alveg slatta á þessu
vorum einu sinnií afmæli hjá Krissu og þá
meiddi ég mig eitthvað í fótbolta og þú þóttist vera voðalega góður
og hugga mig en þá varst þú bara að reyna að kyssa mig og ég hljóp
á eftir þér ég veit ekki hvað lengi alveg á milljón en auðvitað
náði ég þér ekkert. þú bara hló þínum smitandi hlátri eins og
ævinlega og gerði grín af mér
Þegar við komum í eldri bekkina urðum við betri vinir og vorum
við mikið saman ákveðin hópur. þetta voru frábær ár sem ég hugsa
alltaf til með bros á vör.
man eftir Því að einu sinni sendir þú mér sms og varst voðalega
sorgmæddur af því að þú var svo hrifin af vinkonu okkar en það gékk
ekki upp.
svo þegar þú varst að koma í sveitina til okkar þegar þið voruð
búin í heyskapnum og þú varst að hjálpa okkur, eða þegar þú komst í
göngur. þegar við vorum að setja inn rúllur og þú varst með mér í
traktornum og við spjölluðum helling.
Allar þessar minningar eru á flugi í hausnum á mér núna. ég trúi
því ekki enn þá að þú sért farinn, sú til hugsun er eitthvað svo
fjarlæg, ég bíð alltaf eftir því að þú komir í akinn og kaupir þér
bland og coke
eða í hvert skipið er ég mæti silvur lituðum bíl
lít ég á nr plötuna og vonast eftir því að það standi SESAR á
henni. en ég veit að það mun ekki gerast og að þó þú sért dáinn þá
veit ég að þú ert alltaf með okkur og munt vaka yfir okkur, hjálpa
okkur þegar við lendum í erfið leikum, huggar okkur þegar okkur
líður illa og hlærð með okkur þegar eitthvað skemmtilegt gerist hjá
okkur.
Sofðu vært
og sofðu rótt
fljúgðu og vængjum
engils inn í ljúfa nótt
Nú þú hjá
englunum sefur
og þá
Guð þig nú hefur.
Sofðu vært
og sofðu rótt
þú ert engill næturinnar
sem mun vaka hjá mér í nótt
Á.J.A
Vertu sæll elsku Sesar minn, minning þín mun ætið
lifa svo undur björt í hugum okkar allra, við minnumst þín með
gráti og hlátri. hvíldu í friði.
Þín frænka Ásta